Hunangsbý (fræðiheiti: Apis) eru ættkvísl býflugna sem einkennast af því að þær gera sér fjölær býflugnabú úr vaxi þar sem þær safna hunangi. Sjö tegundir hungangsbýa eru nú viðurkenndar og 44 undirtegundir. Áður voru tegundirnar taldar vera 6-11 talsins. Þekktasta hunangsbýið er vestræna alibýflugan sem er alin sem húsdýr til að framleiða hunang og vax og til að frjóvga nytjajurtir. Hunangsbý eru aðeins lítið brot af þeim 20.000 tegundum sem teljast til býflugna. Sumar skyldar tegundir býflugna af öðrum ættkvíslum framleiða líka hunang þar á meðal broddlausar býflugur en aðeins flugur af ættkvíslinni Apis teljast sönn hunangsbý. Býflugnafræði er undirgrein skordýrafræði sem fæst við rannsóknir á býflugum.
Ættkvíslarnafnið Apis er Latína fyrir "bý".[1]
Litningafjöldinn í þremur greinum býflugna er: Micrapis 2N = 16, Megapis 2N = 16, and Apis 2N = 32. Drónar allra tegunda hafa 1N litningafjölda. Genamengi Apis hefur verið kortlagt.
Apis florea og Apis andreniformis eru smáar býflugur frá Suður- og Suðaustur-Asíu. Þær gera smá berskjölduð bú í trjám og runnum. Stingir þeirra ná yfirleitt ekki í gegn um mannshúð, svo meðhöndlun þeirra þarfnast bara lágmarks varnarbúnaðs. Þær eru fornastar af núverandi býflugum, kannski ólíkar Bartonian (um 40 milljón árum síðan eða aðeins seinna) öðrum stofnum, en virðast ekki hafa aðgreinst frá hvor öðrum í langan tíma fyrir Neogene.[2] Apis florea have smaller wing spans than its sister species.[3] Apis florea er einnig al gular nema vinnubý sem eru með svartan skjöld (scutellum).[3]
Ein tegund er viðurkennd í undirættkvíslinni Megapis. Hún byggir vanalega staka eða fáar berar plötur hátt í trjám, á klettum, og stundum byggingum. Þær geta verið mjög árásargjarnar og geta auðveldlega stungið fólk til bana.
Þetta eru þrjár eða fjórar tegundir. Hin rauða Koschevnikovs bý (Apis koschevnikovi) frá Borneo. Apis cerana, austræna hunangsbýið, er hefðbundin hunangsfluga Suður- og Austur-Asíu, höfð í búum svipað og A. mellifera, þó í miklu minna mæli og staðbundnara. Enn er óljóst með undirtegundirnar A. c. nuluensis og Apis nigrocincta. Nýjustu greiningarnar/kenningarnar eru að þetta séu sjálfstæðar tegundir, og að A. cerana sé jafnvel undirættkvisl.[2]
A. mellifera, algengasta ræktaða tegundin, var þriðja skordýrið til að vera með genamengið kortlagt. Þær virðast hafa orðið til í Austur-Afríku og breiðst út þaðan til Norður-Evrópu og austur til Asíu til Tien Shan-fjallakeðjunnar. Margar undirtegundir hafa aðlagast að svæðisbundnum aðstæðum og veðurfari; að auki, blendingar svo sem Buckfast bý, hafa verið ræktuð. Hegðun, litur og lögun geta verið breytileg frá einni undirtegund (eða afbrigði) til annarrar.
Apis mellifera er ekki innfædd í Ameríku, svo hún var ekki til þar er fyrstu Evrópubúarnir komu þangað. Hinsvegar voru aðrar býflugnategundir haldnar hjá innfæddum.[6] Um 1622 komu Evrópskir innflytjendur með alibýflugur (A. m. mellifera) til Ameríku, og fljótlega þar á eftir með undirtegundina (A. m. ligustica) auk annarra. Margar ræktunarjurtir sem treysta á býflugur(Apis) hafa einnig verið fluttar inn síðan á nýlendutímanum. Villisvermir breiddust hratt út að sléttunum miklu, yfirleitt á undan innflytjendunum. Býflugurnar komust ekki af sjálfsdáðum yfir Klettafjöllin; þær voru flutt af Mormónum.[7] til Utah eftir 1840, og með skipi til Kaliforníu um 1850. [[File:Honey Bee takes Nectar.JPG|thumb|Býfluga sýgur blómasafa úr blómi og frjókorn klístrast við búkinn í Tansaníu
Tvær tegundir hunangsflugna, A. mellifera og A. cerana indica, eru oft ræktaðar til nytja.
[[File:Birth of black bee (Apis mellifera mellifera).jpg|thumb|"Fæðing" brúnnar alibýflugu (A. m. mellifera)]]
Eins og hjá flestum félagsskordýrum, inniheldur bú eina drottningu(frjótt kvendýr); árstíðabundið allt að nokkur þúsund drónar(frjóir karlar);[8] og tugi þúsunda ófrjórra kvenkyns vinnuflugna.
Á kaldari svæðum, hætta býflugurnar fæðuleit þegar hitinn fer niður fyrir 10°C og safnast saman í miðju búsins til að mynda vetrarþyrpingar (enska: "winter cluster"). Vinnubýin safnast saman í kring um drottninguna, og skjálfa (til hitamyndunar) til að halda miðjunni við 27°C hita við upphaf vetrar og hækka í 34°C þegar hún byrjar aftur að verpa. Vinnubýin skiptast á að vera við miðjuna og jaðar svo engu þeirra verði of kalt. Við jaðar þyrpingarinnar fer hitinn niður í 8 - 9°C. Þeim mun kaldara sem verður, þeim mun þéttari verður þyrpingin. Um veturinn borða þær hunangið til að viðhalda líkamshitanum. Magn hunangs sem þær þurfa fer eftir lengd og hörku vetrar, en þörfin á tempruðum svæðum er frá 15-50 kg..[9] Að auki, eru sumar tegundir, þar á meðal alibýflugur auk Apis cerana, færar um hitastjórnun að sumri eins og vetri.[10]
Tegundir Apis eru ósérhæfðir frjóvgarar, og frjóvga margar tegundir plantna, en alls ekki allar plöntur. Af öllum býflugum er það aðeins A. mellifera sem hefur verið notuð í atvinnuskyni við frævun ræktunarplantna. Verðmæti þessarar þjónustu er talin hlaupa á milljörðum dollara. Býflugur safna 66 lb (um 1,8 kg) af frjókornum á ári, á búið. [11]
Hunang er flókinn vökvi sem er myndaður úr blómasafa og sætuefni frá plöntum (stundum í gegn um blaðlýs) og trjám, sem er safnað saman, umbreyttur, og geymdur í búinu sem forði. Allar núlifandi tegundir af Apis hafa verið afrændar af mönnum til neyslu, þó að til framleiðslu hafa aðeins A. mellifera og A. cerana verið nýttar að marki. Hunang hefur stundum líka verið tekið frá býflugum af öðrum ættkvíslum. Til að sækja eitt gramm þurfa þær 50 ferðir. Að baki 1 kg af hunangi liggja 15 milljón flugstundir eða 20 milljón blómaheimsóknir.
Nektar, vökvi með hátt gildi súkrósa, myndast í sérstökum kirtlum plantna nefndum "nectaries" á ensku. Hann er mikilvæg orkuuppsprettu fyrir býflugur.
Vinnubý á vissum aldri mynda vaxið í sérstökum kirtlum á afturbol. Þær nota vaxið til að mynda veggi og hólf rammanna. Eins og með hunangið er vaxið til ýmissa nota fyrir manneskjur.
Býflugur safna frjókornum í sérstaka vasa á leggjum og bera í búið. Í búinu, er frjókornið nýtt sem prótein uppspretta. Við sumar aðstæður er hægt að safna aukafrjókorni úr búum A. mellifera og A. cerana. Það er notað til heilsubótar.
Vinnubý blanda saman frjókornum, hunangi og efni úr kirtlum (þeirra) og láta það gerjast í römmunum til að mynda býbrauð. Brauðið er étið af vinnuflugum (3-11 daga) sem síðan mynda svonefnt drottningarhunang sem drottningin og lirfur neyta.
Propolis eða býflugnalím er gert úr trjásafa og balsam og resín. Þær tegundir af býflugum sem gera sér bú í holum trjám nota propolis til að fylla í rifur í búinu. Apis florea nota propolis til að verjast maurum með því að þekja greinina sem búið hangir úr og búa til klístraðan varnargarð. Propolis er notað af mönnum sem heilsubót á ýmsan veg, og einnig notað í snyrtivörur.
Hunangsbý keppa við Bombus hortorum, humlutegund, vegna þess að þær afla fanga á sömu stöðum, á móti kemur að humlurnar eru á ferðinni að morgni, meðan hunangsbýin eru á ferðinni seinni partinn.[12]
Vitað er að býflugur eiga samskipti með mörgum mismunandi efnum og lyktarefnum, eins og er algengt hjá skordýrum, en þær nota sérhæfða hegðun sem virkar eins og dans til að tjá sig um gæði og gerð mataruppsprettu, og hvar hún er staðsett. Breytilegt er á milli tegunda hvernig þær tjá sig.
Hunangsbý (fræðiheiti: Apis) eru ættkvísl býflugna sem einkennast af því að þær gera sér fjölær býflugnabú úr vaxi þar sem þær safna hunangi. Sjö tegundir hungangsbýa eru nú viðurkenndar og 44 undirtegundir. Áður voru tegundirnar taldar vera 6-11 talsins. Þekktasta hunangsbýið er vestræna alibýflugan sem er alin sem húsdýr til að framleiða hunang og vax og til að frjóvga nytjajurtir. Hunangsbý eru aðeins lítið brot af þeim 20.000 tegundum sem teljast til býflugna. Sumar skyldar tegundir býflugna af öðrum ættkvíslum framleiða líka hunang þar á meðal broddlausar býflugur en aðeins flugur af ættkvíslinni Apis teljast sönn hunangsbý. Býflugnafræði er undirgrein skordýrafræði sem fæst við rannsóknir á býflugum.