dcsimg

Gorkúla ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Gorkúla eða sortukúla (fræðiheiti: Bovista nigrescens) er ætisveppur sem algengt er að finna á túnum og í görðum. Meðan kúlan er ung er hún hvít í gegn, kúlulaga og stinn viðkomu og nefnist þá merarostur og er ágætur matsveppur. Eftir því sem hún eldist verður hún græn og grautarkennd að innan og heitir þá gorkúla þar til hún verður að lokum dökkbrún og þurr og að innan eins og hún væri full af ryki en rykkornin eru gró sveppsins. Á því stigi nefnist hún kerlingareldur. Gorkúla og kerlingareldur eru óæt.[1]

Tilvísanir

  1. Flóra Íslands. Sortukúla - Bovista nigrescens. Sótt þann 14. mars 2017.
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Gorkúla: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Gorkúla eða sortukúla (fræðiheiti: Bovista nigrescens) er ætisveppur sem algengt er að finna á túnum og í görðum. Meðan kúlan er ung er hún hvít í gegn, kúlulaga og stinn viðkomu og nefnist þá merarostur og er ágætur matsveppur. Eftir því sem hún eldist verður hún græn og grautarkennd að innan og heitir þá gorkúla þar til hún verður að lokum dökkbrún og þurr og að innan eins og hún væri full af ryki en rykkornin eru gró sveppsins. Á því stigi nefnist hún kerlingareldur. Gorkúla og kerlingareldur eru óæt.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS