dcsimg

Vapítihjörtur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS
 src=
Útbreiðsla.
 src=
Vapítihjörtur, karldýr.
 src=
Karldýr í átökum.
 src=
Kvendýr.
 src=
Kvendýr og kálfar.

Vapítihjörtur eða skógarhjörtur[1] (fræðiheiti: Cervus canadensis) er ein stærsta tegundin af ætt hjartardýra (Cervidae). Búsvæði þeirra er í Norður-Ameríku og Austur-Asíu. Þó hafa þeir verið fluttir til Argentínu, Ástralíu og Nýja Sjálands.

Vapítíhirtir lifa í skóglendi og éta grastegundir, lauf og börk. Þeir lifa í hjörðum. Karldýrin hafa stór horn sem vaxa yfir sumarið en falla af hvert ár. Þeir berjast innbyrðis með hornunum um aðgang að kvendýrunum. Lífslíkur villtra dýra eru 8-12 ár og hæð er 1,2-1,5 metrar. Þyngd fullorðinna dýra er frá 147-499 kg.[2]

Tala undirtegunda er nokkuð á reiki en talað er um 4 undirtegundir í Ameríku og 4 í Asíu.

Á ensku er tegundin er kölluð elk eða wapiti í Ameríku en í Evrópu er orðið elk notað yfir elg[3]. Nafnið wapiti kemur úr norður-amerísku frumbyggjatungumálunum Cree og Shawnee.

Heimildir

  • Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi. Örn og Örlygur. 1984.

Tilvísanir

  1. Dýralíf í Rússlandi Vísindavefur. Skoðað 17. janúar 2016.
  2. ElkNational Geographic. Skoðað 20 janúar 2016.
  3. Skrýtinn elgur Mbl. Skoðað 17. janúar 2016.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Vapítihjörtur: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS
 src= Útbreiðsla.  src= Vapítihjörtur, karldýr.  src= Karldýr í átökum.  src= Kvendýr.  src= Kvendýr og kálfar.

Vapítihjörtur eða skógarhjörtur (fræðiheiti: Cervus canadensis) er ein stærsta tegundin af ætt hjartardýra (Cervidae). Búsvæði þeirra er í Norður-Ameríku og Austur-Asíu. Þó hafa þeir verið fluttir til Argentínu, Ástralíu og Nýja Sjálands.

Vapítíhirtir lifa í skóglendi og éta grastegundir, lauf og börk. Þeir lifa í hjörðum. Karldýrin hafa stór horn sem vaxa yfir sumarið en falla af hvert ár. Þeir berjast innbyrðis með hornunum um aðgang að kvendýrunum. Lífslíkur villtra dýra eru 8-12 ár og hæð er 1,2-1,5 metrar. Þyngd fullorðinna dýra er frá 147-499 kg.

Tala undirtegunda er nokkuð á reiki en talað er um 4 undirtegundir í Ameríku og 4 í Asíu.

Á ensku er tegundin er kölluð elk eða wapiti í Ameríku en í Evrópu er orðið elk notað yfir elg. Nafnið wapiti kemur úr norður-amerísku frumbyggjatungumálunum Cree og Shawnee.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS