dcsimg
Image of Sitka alder
Life » » Plants » » Dicotyledons » » Birch Family »

Sitka Alder

Alnus alnobetula subsp. sinuata (Regel) Raus

Sitkaelri ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Sitkaelri eða sitkaölur[1] (fræðiheiti: Alnus viridis ssp. sinuata) er margstofna runni af birkiætt sem vex í vesturhluta Norður-Ameríku: Allt frá Alaska til fjalla í Kaliforníu.

Það er ljóselsk tegund og nær frá 3 til 10 metra að hæð og getur vaxið frá sjávarmáli í allt að 2700 metra hæð. Laufblöð verða allt að 9 sm löng og karlreklar 10-12 sm. Sitkaelri gerir ekki miklar kröfur til jarðvegs en þrífst best þar sem jarðraki er til staðar. Sitkaelri verður sjaldan eldra en 50 ára. [2]

Sitkaelri er notað í landgræðslu í Bandaríkjunum en rætur þess og sambýli þeirra við niturbindandi rótargerla hjálpa til við það. [3] Tilraunir hafa verið gert með það á Íslandi.[4] Sitkaölur frá skógrækt hefur sáð sér á Stjórnarsandi við Kirkjubæjarklaustur, Skógey nærri Hornafirði, Hveragerði, Reyðafirði og í Elliðaárdal.[1]

Sitkaelri er náskylt kjarrelri og grænelri sem vex í Evrópu og Asíu.[5]

Tilvísanir

  1. 1,0 1,1 Hörður Kristinsson (2008). Íslenskt plöntutal, blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. 58 bls.
  2. Sitkaelri Lystigarður Akureyrar. Skoðað 27. maí, 2016
  3. Sitka alder United States Department of Agriculture. Skoðað 27. maí, 2016.
  4. Elri gæti komið í stað lúpínu.Vísir. Skoðað 27. maí, 2016.
  5. Elritegundir Skógrækt ríkisins. Skoðað 27. maí, 2016.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Sitkaelri: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Sitkaelri eða sitkaölur (fræðiheiti: Alnus viridis ssp. sinuata) er margstofna runni af birkiætt sem vex í vesturhluta Norður-Ameríku: Allt frá Alaska til fjalla í Kaliforníu.

Það er ljóselsk tegund og nær frá 3 til 10 metra að hæð og getur vaxið frá sjávarmáli í allt að 2700 metra hæð. Laufblöð verða allt að 9 sm löng og karlreklar 10-12 sm. Sitkaelri gerir ekki miklar kröfur til jarðvegs en þrífst best þar sem jarðraki er til staðar. Sitkaelri verður sjaldan eldra en 50 ára.

Sitkaelri er notað í landgræðslu í Bandaríkjunum en rætur þess og sambýli þeirra við niturbindandi rótargerla hjálpa til við það. Tilraunir hafa verið gert með það á Íslandi. Sitkaölur frá skógrækt hefur sáð sér á Stjórnarsandi við Kirkjubæjarklaustur, Skógey nærri Hornafirði, Hveragerði, Reyðafirði og í Elliðaárdal.

Sitkaelri er náskylt kjarrelri og grænelri sem vex í Evrópu og Asíu.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS