Flikruætt (fræðiheiti: Rhizocarpaceae) er ætt af fléttum. Flikruætt inniheldur fjórar ættkvíslir: Catolechia, Epilichen, Rhizocarpon og Poeltinula. Stundum er ættkvíslin Sporastatia talin til flikruættar en um það eru skiptar skoðanir.[1] Á Íslandi finnast fléttur af öllum áðurnefndu ættkvíslunum nema Poeltinula.[2]
Tegundir af flikruætt hafa þal sem er reitaskipt en askhirslurnar eru svartar og kringlóttar eða strendar.[1]
Gróin eru yfirleitt dökk eða glær, tvíhólfa eða marghólfa, fyrir utan ættkvíslina Sporastatia sem hefur einhólfa glær gró.[1]
Flikruætt (fræðiheiti: Rhizocarpaceae) er ætt af fléttum. Flikruætt inniheldur fjórar ættkvíslir: Catolechia, Epilichen, Rhizocarpon og Poeltinula. Stundum er ættkvíslin Sporastatia talin til flikruættar en um það eru skiptar skoðanir. Á Íslandi finnast fléttur af öllum áðurnefndu ættkvíslunum nema Poeltinula.