dcsimg

Fokienia ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Fokienia er ættkvísl barrtrjáa í Cupressaceae (Grátviðarætt). Einkenni Fokienia eru mitt á milli Chamaecyparis og Calocedrus. Erfðafræðilega er Fokienia miklu nær Chamaecyparis, og ekki allir grasafræðingar sem viðurkenna Fokienia sem sjálfstæða ættkvísl.[2] Ættkvíslin inniheldur aðeins eina núlifandi tegund, Fokienia hodginsii , og eina útdauða tegund (steingerfingar) (Fokienia ravenscragensis).[3][4]

Nafnið Fokienia er dregið af gamalli umskrift fyrir Fujian hérað, Kína, þaðan sem fyrstu eintökin komu til Evrópu, safnað af Captain Hodgins 1908.[3] [4]

Fokienia hodginsii er frá suðaustur Kína (Zhejiang, Guizhou, Yunnan og Fujian) til norður Vietnam (Ha Bac, Hà Giang, Hà Tĩnh, Hòa Bình, Sơn La, Nghệ An, Lào Cai, Lai Châu, Thanh Hóa, Tuyên Quang, Yên Bái og Vĩnh Phúc), vestur mið Víetnam (Đắk Lắk, Gia Lai, Lâm ĐồngLâm Đồng), og vestur til norður Laos.

 src=
Fokienia hodginsii

Tegundinni Fokienia ravenscragensis var lýst eftir steingerfingum frá fyrri hluta Paleósen (66-60 m.a. fyrir nútíma) í Ravenscrag mynduninni í suðvestur Saskatchewan og nærliggjandi Alberta, Kanada.

Tilvísanir

  1. Thomas, P. & Yang, Y. (2013). Fokienia hodginsii. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T32351A2815809. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T32351A2815809.en. Sótt 10. nóvember 2017.
  2. Christopher J. Earle (2011). Chamaecyparis hodginsii. The Gymnosperm Database. Sótt 31. mars 2012.
  3. 3,0 3,1 {{{assessors}}} (1998). Fokienia hodginsii. 2006 Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. IUCN 2006. Sótt 11 May 2006.
  4. 4,0 4,1 Arboretum de Villardebelle: photo of cone
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Fokienia: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Fokienia er ættkvísl barrtrjáa í Cupressaceae (Grátviðarætt). Einkenni Fokienia eru mitt á milli Chamaecyparis og Calocedrus. Erfðafræðilega er Fokienia miklu nær Chamaecyparis, og ekki allir grasafræðingar sem viðurkenna Fokienia sem sjálfstæða ættkvísl. Ættkvíslin inniheldur aðeins eina núlifandi tegund, Fokienia hodginsii , og eina útdauða tegund (steingerfingar) (Fokienia ravenscragensis).

Nafnið Fokienia er dregið af gamalli umskrift fyrir Fujian hérað, Kína, þaðan sem fyrstu eintökin komu til Evrópu, safnað af Captain Hodgins 1908.

Fokienia hodginsii er frá suðaustur Kína (Zhejiang, Guizhou, Yunnan og Fujian) til norður Vietnam (Ha Bac, Hà Giang, Hà Tĩnh, Hòa Bình, Sơn La, Nghệ An, Lào Cai, Lai Châu, Thanh Hóa, Tuyên Quang, Yên Bái og Vĩnh Phúc), vestur mið Víetnam (Đắk Lắk, Gia Lai, Lâm ĐồngLâm Đồng), og vestur til norður Laos.

 src= Fokienia hodginsii