dcsimg
Image of Obscure Morning Glory
Creatures » » Plants » » Dicotyledons »

Morning Glory Family

Convolvulaceae

Vafningsklukkuætt ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Vafningsklukkuætt[1] (latína: Convolvulaceae) eða vafklukkuætt[2] er ætt blómplantna. Ættin inniheldur aðallega klifurjurtir og sumar þeirra eru ræktaðar til skrauts, sem náttúrulyf eða sem matjurtir.[3] Sætar kartöflur eru af vafningsklukkuætt og eru mikilvægt nytjajurt fyrir manninn.

Einkenni

Tegundir af vafningsklukkuætt hafa stakstæð blöð oft þykkar rætur eða jarðstöngla sem geta myndað nýja plöntu. Sumar tegundir lifa sníkjulífi og þær hafa ekki blaðgrænu. Stöngularnir eru trjákenndir eða mjúkir.[3]

Blómin eru mynduð af fimm lausum bikarblöðum sem vaxa yfir reifarblöðum í sumum tegundum. Krónublöðin eru fimm talsins og þau eru samvaxin þannig að blómið er í laginu eins og trompet. Fræflarnir eru fimm og eru samvaxnir við krónublöðin. Blómin eru undirsætin. Aldinið er hýðisaldin sem getur innihaldið fimm trjákennd fræ. Fræin eru stundum hærð.[3]

Tilvísanir

  1. Líforðasafn - Orðabanki Íslenskrar málstöðvar. Sótt 21.07.2019.
  2. Ágúst H. Bjarnason (2014). Plöntuættir. Sótt þann 21. júlí 2019.
  3. 3,0 3,1 3,2 The Seed Site (án árs). Convolvulaceae - the bindweed family. Sótt þann 21. júlí 2019.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Vafningsklukkuætt: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Vafningsklukkuætt (latína: Convolvulaceae) eða vafklukkuætt er ætt blómplantna. Ættin inniheldur aðallega klifurjurtir og sumar þeirra eru ræktaðar til skrauts, sem náttúrulyf eða sem matjurtir. Sætar kartöflur eru af vafningsklukkuætt og eru mikilvægt nytjajurt fyrir manninn.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS