Abies pinsapo (Spánarþinur) er tegund af þini ættaður frá suður Spáni og norður Marokkó.[3] Hann vex í fjöllum Andalúsíu á Spáni og er talinn "þjóðartré" Andalúsíu. Á Spáni vex henn í 900 til 1800 metra hæð í Sierra de Grazalema í héraðinu Cádiz og í Sierra de las Nieves og Sierra Bermeja, bæði nálægt Ronda í héraðinu Málaga. Í Marokkó, er það einvörðungu í Rif-fjöllum í 1400 til 2100 metra hæð í Jebel Tissouka og Jebel Tazaot.
Abies pinsapo er sígrænt tré að 20 til 30 sm hátt, með keilulaga krónu, sem verður nokkuð óregluleg með aldrinum. Barrið er 1.5 til 2 sm langt, raðað geislalægt um allann sprotann, og eru mjög bláleitt föl blá-grænt, með breiðum línum af hvítleitu vaxi á báðum hliðum. Könglarnir eru sívalir, 9 til 18 sm langir, grænbleikir til fjólulitir fyrir þroska, og sléttir með stoðblöðin stutt og ekki útistandandi. Við þroska sundrast þeir til að losa vængjuð fræin.
Marokkóska afbrigðið, Abies pinsapo var. marocana, er frábrugðið með að barrið er mjög bláleitt og könglarnir aðeins lengri, 11 til 20 sm.
Afbrigðið A. pinsapo 'Glauca' hefur fengið Award of Garden Merit frá Royal Horticultural Society.[4]
Spánarþinur, þrátt fyrir bestu verndunar og endurræktunartilraunir sem hafa aukið mjög gnægð hans, hefur enn allnokkrar ógnir svo sem eld, jarðvegseyðingu, nýbyggingar, fjölda gesta og ferðamanna auk annars.
Abies pinsapo (Spánarþinur) er tegund af þini ættaður frá suður Spáni og norður Marokkó. Hann vex í fjöllum Andalúsíu á Spáni og er talinn "þjóðartré" Andalúsíu. Á Spáni vex henn í 900 til 1800 metra hæð í Sierra de Grazalema í héraðinu Cádiz og í Sierra de las Nieves og Sierra Bermeja, bæði nálægt Ronda í héraðinu Málaga. Í Marokkó, er það einvörðungu í Rif-fjöllum í 1400 til 2100 metra hæð í Jebel Tissouka og Jebel Tazaot.