Finnungur (fræðiheiti: Nardus stricta) er þúfugras af ættkvíslinni Nardus sem vex víða í tempraða beltinu í Evrópu og Asíu. Blöð Finnungs eru þráðmjó, stinn og snörp viðkomu. Axið er einhliða (smáöxin raða sér öðru megin á stráið) með uppréttum smáöxum.[1] Finnungur hefur stuttan jarðstöngul og af honum vaxa sprotar sem mynda þéttar, gráhvítar þúfur. Finnungur vex víða í graslautum, brekkurótum og snjódældum. Hann er algengur um allt Ísland, þó síst á Suður- og Suðausturlandi. Hann hefur heldur ekki fundist á Miðhálendinu.
Finnungur (fræðiheiti: Nardus stricta) er þúfugras af ættkvíslinni Nardus sem vex víða í tempraða beltinu í Evrópu og Asíu. Blöð Finnungs eru þráðmjó, stinn og snörp viðkomu. Axið er einhliða (smáöxin raða sér öðru megin á stráið) með uppréttum smáöxum. Finnungur hefur stuttan jarðstöngul og af honum vaxa sprotar sem mynda þéttar, gráhvítar þúfur. Finnungur vex víða í graslautum, brekkurótum og snjódældum. Hann er algengur um allt Ísland, þó síst á Suður- og Suðausturlandi. Hann hefur heldur ekki fundist á Miðhálendinu.