dcsimg

Impalahjörtur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Impalahjörtur (fræðiheiti: Aepyceros melampus)[1] er meðalstór antilópa sem fyrirfinnst í austur- og suðurhluta Afríku. Hann er eina tegundin í ættinni Aepyceros og var lýst fyrst fyrir Evrópubúum af þýska dýrafræðingnum Hinrich Lichtenstein árið 1812. Impalahjörtur nær allt að 70–92 cm hæð og vegur 40–76 kg. Feldurinn er gljáandi og rauðbrúnn. Horn hjartarins eru 45–92 cm löng og lýrulaga.

Impalahirtir eru virkastir á daginn. Þeir eru annað hvort hópsæknir eða heimaríkir. Hegðun þeirra ræðst af veðurfari og landslagi. Stökk impalahjarta er einkennandi fyrir tegundina, en þeir stökkva til að bægja frá rándýrum. Impalahirtir bíta eftir mat og éta ýmis grös, ávexti og akasíufræ.

Fengitími impalahjarta stendur yfir árlega í um það bil þrjár vikur undir lok regntímans (sirka maí). Hirtirnir keppast um yfirráð, en hjörturinn sem fer með sigur af hólmi sækist eftir lóða hind. Meðgöngutíminn er sex til sjö mánuðir. Yfirleitt fæðist eingöngu einn kálfur. Kálfarnir sjúga í fjóra til sex mánuði.

Kjörlendi impalahjarta er skógur og skógarjaðrar við grassléttur. Hann heldur sig við vatn.

Heimild

 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Impalahjörtur: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Impalahjörtur (fræðiheiti: Aepyceros melampus) er meðalstór antilópa sem fyrirfinnst í austur- og suðurhluta Afríku. Hann er eina tegundin í ættinni Aepyceros og var lýst fyrst fyrir Evrópubúum af þýska dýrafræðingnum Hinrich Lichtenstein árið 1812. Impalahjörtur nær allt að 70–92 cm hæð og vegur 40–76 kg. Feldurinn er gljáandi og rauðbrúnn. Horn hjartarins eru 45–92 cm löng og lýrulaga.