Flóajurt (fræðiheiti: Persicaria maculosa) er einær jurt í súruætt (Polygonaceae).[1] Blómin eru ljósrauð og fræin svört. Til aðgreiningar frá Persicaria lapathifolia þá vantar hana kirtla á axlarblöðum og neðan á blöðunum.[2] Blöðin eru oftast með svartan blett ofaná. Hún blómstrar í júlí, ágúst. Flóajurt verður 10 til 60 sm löng. Hún vex við hveri og laugar, eða á ræktaðri jörð. Víða á vestur og sv-landi.[3]
Flóajurt (fræðiheiti: Persicaria maculosa) er einær jurt í súruætt (Polygonaceae). Blómin eru ljósrauð og fræin svört. Til aðgreiningar frá Persicaria lapathifolia þá vantar hana kirtla á axlarblöðum og neðan á blöðunum. Blöðin eru oftast með svartan blett ofaná. Hún blómstrar í júlí, ágúst. Flóajurt verður 10 til 60 sm löng. Hún vex við hveri og laugar, eða á ræktaðri jörð. Víða á vestur og sv-landi.